Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sementsfestun og þurrfræsingu á Austursvæði 2020.
Áætlaðar magntölur:
- Festun með sementi 11.430 m2
- Þurrfræsing og jöfnun 2.640 m2
- Tvöföld klæðing 14.070 m2
- Efra burðarlag afrétting 422 m3
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 17. júní 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 2. júlí 2020.
Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.