F.h. Félagsbústaða er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Jórufell 2-12 – endurbætur á lóð 2020 – útboð nr. 14887
Verkið fellst í upptöku núverandi yfirborðsefna, viðbótar-jarðvegsskiptum, lagnavinnu, malbikun, lagningu forsteyptra eininga, gróðursetningar, uppsetningu lýsingar og annars búnaðar á lóð. Reiknað er með endurnýtingu á tilteknum yfirborðsefnum en annars skal fjarlægja megnið af þeim á viðeigandi förgunarstaði.
Helstu verkþættir eru:
- Gröftur: 1000 m3
- Fyllingar: 800m3
- Snjóbræðsla: 1.900m
- Fráveitulagnir: 200m
- Ljósastaurar: 13stk
- Malbikun: 1.700m2
- Hellur (nýlögn): 670m2 + 330m2 (endurlögn)
- Grasþökur: 960m2
Lok framkvæmdatíma: 30. október 2020
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00, þann 16. júní 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 15. júlí 2020.