Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að taka tilboði verktakafyrirtækisins Arnarhvols að upphæð 99.967.665 krónur í endurbætur á útisvæði við Vatnaveröld.
Fyrirtækið var það eina sem sendi inn tilboð í verkið þegar það var boðið út og var tilboðinu hafnað á þeim tíma.
Fyrirtækinu gafst kostur á að endurskoða fyrra tilboð sem var og gert og var því tekið.
Kostnaðaráætlun Reykjanesbæjar hljóðaði upp á 98.122.268 króna.
Heimild: Sudurnes.net