Fyrirtækin sem tóku þátt í útboðinu eru: sænska arkitektúrfyrirtækið White arkitekter Aktiebolag, sænska verktakafyrirtækið SWECO International AB, norska ráðgjafafyrirtækið Norconsult AS, frönsku verktaka- og ráðgjafafyrirtækin INGEROP og Egis Villes & Transports, íslenska verkfræðistofan EFLA hf, danska verkfræðistofan COWI A/S og franska verktaka- og arkitektúrstofan Artelia.
Tilboð fyrirtækjanna eru nú í matsferli. Þrjú til fjögur þeirra taka þátt í seinni hluta útboðsins en endanlega niðurstaða á að liggja fyrir í nóvember.
Borgarlínan er samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins. Hún á að verða hryggjarstykkið í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og er kerfi hraðvagna.
25 stoppistöðvar verða í fyrsta áfanga samkvæmt fyrstu tillögum.
Áfanginn verður þrettán kílómetra langur og er áætlað að taka hann í notkun árið 2023.
Heimild: Ruv.is