Isavia Innanlandsflugvellir ehf. óska eftir tilboðum í fullnaðarhönnun á viðbyggingu við flugstöðina á Akureyrarflugvelli ásamt hönnun breytinga á núverandi flugstöð til að mæta aukinni þörf vegna millilandaflugs.
Markmiðið er að bæta aðstöðu og þjónustu við flugfarþega til og frá flugvellinum.
Um er að ræða 1.000m2 stálgrindarbyggingu fyrir millilandaflug og aðlögun núverandi flugstöðvar að breyttri notkun.
Sjá nánari upplýsingar í útboðsgögnum á útboðsvef kaupanda.