Reykjanesbær óskar eftir tilboðum í verkið
„Gervigrasvöllur – Jarðvinna og lagnir“
Um er að ræða gerð gervigrasvallar vestan Reykjaneshallar við Afreksbraut.
Verkið er fólgið í uppúrtekt, fyllingum, jarðvinnu vegna lagna, lagningu dren-, hita- og sprinklerlagna sem og lagningu ídráttarröra.
Helstu magntölur eru uppúrtekt um 17.500 m3, fyllingar um 8.700 m3, jöfnunarlög 19.400 m2, frárennslislagnir 1.510 m, hitalagnir 39.700 m, ídráttarrör 3.475 m .
Verki skal lokið eigi síðar en 30. september 2020.
Útboðsgögn eru ókeypis og verða afhent rafrænt ef sendur er tölvupóstur á kristinn.th.jakobsson@reykjanesbaer.is frá og með föstudeginum 8. maí 2020.
Tilboðum skal skila rafrænt eigi síðar en 26.maí kl: 13:00 og verða þau opnuð kl: 13:01, 26. maí 2020.
Þar sem skil eru rafræn verður ekki um formlega opnun að ræða.