Miðvikudaginn 8. júlí tók Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra fyrstu skóflustunguna að stækkun verknámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Nýbyggingin verður um 1.700 fermetrar að stærð, auk þess sem gagngerðar endurbætur verða gerðar á eldra húsnæði sem er um 1.150 fermetrar.
Verkleg framkvæmd var boðin út 15. apríl og tilboð opnuð 6. maí. Jáverk ehf. voru lægstbjóðendur með tilboð upp á krónur 815.405.683.- sem var 107,18% af kostnaðaráæltun, sem hljóðaði upp á krónur 760.795.392.-.
Verkkaupar eru mennta- og menningarmálaráðuneytið og Sveitarfélagið Árborg, Héraðsnefnd Árnesinga, Héraðsnefnd Rangæinga og Héraðsnefnd Vestur-Skaftfellinga. Hlutur sveitarfélaganna er 40% á móti 60% hlut ríkisins.
Heimild: Framkvæmdasýsla ríkisins.