Ríkiskaup, fyrir hönd Isavia ohf., óska eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í opnu útboði vegna Breytinga á brottfararsal Norðurbyggingar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Verkið felst í útvegun og uppsetningu á lýsingu í Merokerfi og gitterbita í suðurhluta Norðurbyggingar ásamt fullnaðarhönnun, forritun og prófunum lýsingarkerfis skv. gögnum frá lýsingarhönnuði.
Verki skal að fullu lokið 30.12.2015.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa.
Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð 13.08.2015, kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.