Veitur ohf. óskar eftir tilboðum í verkefnið: „Nýbygging fyrir Veitur í Hveragerði“
Verkið felst í byggingu á nýrri aðstöðu fyrir Veitur á Suðurlandi að Vorsabæ 9 í Hveragerði. Um er að ræða byggingu á eini hæð, alls um 422 m2.
Húsið skiptist í skrifstofuhluta og verkstæðishluta.
Í skrifstofuhlutanum eru skrifstofur, vinnuherbergi og fundaraðstaða auk kaffiaðstöðu fyrir starfsmenn og búningsherbergja.
Verkstæðishlutinn skiptist í lager og almennt verkstæði og er með aflokuðu tæknirými. Innan gengt er á milli skrifstofuhluta og verkstæðishluta.
Verktaki skal annast jarðvinnu, uppsteypu húss, efnisútvegun og fullnaðar frágang þess að utan og innan og fullgera lóð. Sjá nánari upplýsingar í útboðsgögnum.
Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur frá og með 17. apríl 2020.
Tilboðum skal skilað eigi síðar en kl. 14:00 þann 14. maí 2020 í gegnum útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur.