F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, Veitna ohf., Mílu efh. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Tryggvagata og Naustin. Endurgerð 2020 – 2021, útboð nr. 14837.
Verkið felst í endurgerð Tryggvagötu (milli Grófar og Pósthússtrætis) og Nausta (milli Geirsgötu og Tryggvagötu).
Skipt verður um jarðveg samkvæmt kennisniðum.
Lagðar verða nýjar fráveitulagnir ásamt því að háspennustrengur, raf-, kaldavatnslagnir verða endurnýjaðar- sem og heitavatnslagnir að hluta.
Verkið felst í að grafa og fylla í götu og gangtéttar, grafa og fylla vegna fráveitu-, háspennu- og götulýsingarlagna, leggja fráveitu- og götuljósalagnir, reisa ljósastólpa, malbika, leggja grágrýtiskant, leggja hellur, steypa yfirborð torgsvæðis og ganga frá gróðursvæðum.
Leggja skal snjóbræðslulagnir í hellulögð og steypt svæði s.s. torg, gangstéttar og upphækkanir á götu, ganga frá yfirborði með götugögnum, vatnsskúlptúr (þokustútum) og öðrum mannvirkjum í samræmi við útboðsgögn.
Helstu magntölur eru:
· Upprif á malbiki 2800 m2
· Upprif á hellum 1300 m2
· Gröftur 8300 m3
· Fylling 8000 m3
· Púkkmulningur 4350 m2
· Fyllingar rótarburðarlag/beð 440 m3
· Snjóbræðsla 3300 m2
· Fráveitulagnir 600 m
· Vatnsveitulagnir 280 m
· Hitaveitulagnir 440 m
· Rafstrengir 370 m
· Ljósleiðaralagnir 600 m
· Lagning kantsteina 510 m
· Malbikun 720 m2
· Hellulögn 2700 m2
· Ljósastólpar 38 stk
Lok framkvæmdatíma: 1. ágúst 2021.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00 þann 21. apríl 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:10 þann 5. maí 2020.