Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Norðursvæði og Austursvæði árið 2020.
Helstu magntölur:
Norðursvæði:
- Yfirlögn: 40.326 m2
- Viðgerðir: 300 m2
- Fræsing: 19.820 m2
Austursvæði:
- Yfirlögn: 20.116 m2
- Viðgerðir 200 m2
- Fræsing: 3.030 m2
Verki skal að fullu lokið 15. september 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 6. apríl 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. apríl 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.