Vegagerðin óskar eftir tilboðum í viðgerðir á malbikuðum slitlögum á Vestursvæði árin 2020-2021.Helstu magntölur eru áætlaðar á ári:
- Viðgerð með fræsun: 1.240 m2
- Sprunguviðgerðir: 1.350 m
- Malbikssögun: 150 m
Verktími er ár hvert frá 1. maí til 1. október hvort ár.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 6. apríl 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. apríl 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.