F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk: Furuskógur, endurgerð lóðar 2020 – 1. áfangi. Jarðvinna, útboð nr. 14794.
Verkið er 1. áfangi í endurgerð lóðar leikskólans Furuskógar við Áland, 108 Reykjavík. Svæðið sem um ræðir er sunnan við leikskólann um það bil 830 m².
Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt.
Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
Verkkaupi leggur til leiktæki, fallvarnarefni, gervigras og yfirborðsmálningu á malbik / hellur og verða þeir verkliðir unnir, af verktökum / aðilum á vegum söluaðila viðkomandi efna, samhliða verkþáttum jarðvinnuverktaka.
Verktaki á að skila undirvinnu á leiksvæðum fyrir 15. júlí 2020 vegna vinnu við leiktæki, fallvarnarefni og gervigrasi. Vinna á vegum söluaðila þessa verkþátta á að vera á tímabilinu 15. júlí til 10. ágúst 2020.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00 þann 31. mars 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 21. apríl 2020.