Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf. óskar eftir tilboðum í burðarvirki og klæðningar fyrir reiðskemmu ásamt uppsetningu.
Verkið felst í útvegun á burðarvirki úr límtré og berandi þak- og veggjaeiningum, ásamt uppsetningu og ytri frágangi.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1.október 2020.
Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur heiti verks, nafn bjóðanda, og nafn, netfang og símanúmer tengiliðs bjóðanda.
Tilboð verða opnuð í Stjórnsýsluhúsi Akraness, Stillholti 16-18, 300 Akranes, þriðjudaginn 7. apríl 2020 kl. 12.00.