Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vegheflun á malarvegum á Suðursvæði, þjónustustöð í Hafnarfirði.
Helstu magntölur á ári eru áætlaðar:
Vegheflun: 200 km
Verki skal að fullu lokið 31. desember 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 9. mars 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. mars 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.