Vegagerðin óskar eftir tilboðum í verkið: Leiðigarður og bakkavörn við Jökulsá í Lóni.
Um er að ræða leiðigarð við landstöpul vestan megin brúar yfir Jökulsá í Lóni á Hringvegi á kafla 1-x4 og bakkavörn um 2,2 km ofar í farveginum austan megin.
Helstu magntölur eru (magntölur: leiðigarður + bakkavörn):
Grjót 3.532 m3 (2.632 + 900)
Síulag 1.120 m3
Uppgröftur 2.500 m3
Fylling 6.088 m3 (4.988 + 1.100)
Verkinu skal að fullu lokið 15. júní 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 17. febrúar 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3. mars 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.