Leikskólinn Ylur í Mývatnssveit vígði nýja leikskólabyggingu formlega á fimmtudaginn að viðstöddu fjölmenni.
Ingibjörg Helga Jónsdóttir leikskólastjóri stjórnaði vígslunni og Alma Dröfn Benediktsdóttir formaður skólanefndar og Þorsteinn sveitarstjóri fluttu ávörp.
Frá þessu segir á heimasíðu Skútustaðahrepps.
Þorsteinn hvatti Mývetninga til að vera duglega við barneignir til að fylla nýja leikskólann og auka á hamingju sveitunga. Ólafur Ragnarsson eigandi verktakans Húsheildar ehf. færði leikskólanum gjöf í tilefni dagsins eða hitaskáp og færum við honum bestu þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf.
Tímamót urðu í sögu leikskólans Yls fimmtudaginn 17. október s.l. þegar ný leikskólabygging var tekin í notkun. Framkvæmdir hófust síðasta vor en verktakinn Húsheild ehf. skilaði leikskólanum af sér samkvæmt áætlun upp á dag. Óhætt er að segja að nýja byggingin sé bylting fyrir starfsemi leikskólans.
Um er að ræða timburhús á einni hæð, byggt á steyptri plötu, við grunnskólann. Nýbyggingin inniheldur m.a. þrjú deildarrými. Samhliða nýbyggingu var skipulagi eldri byggingar breytt þannig að þar er sérkennslu/fundarherbergi auk skrifstofu leikskólastjóra og undirbúningsher-bergis. Hreinlætisaðstaða barna er endurbætt og bætt við snyrtingu í forstofu. Heildarkostnaður við byggingu leikskólans var um 62 m.kr.
Forstofa leikskólans var færð og útbúin þurrkaðstaða með skápum. Heildarstarfssvæði leikskóla er 226 ferm. auk aðgengis að snyrtingu fyrir hreyfihamlaða í grunnskólabyggingu. Leik- og kennslurými ásamt sérkennsluaðstöðu er 107,7 ferm. Í leikskólanum er nýtt fráveitukerfi, þ.e. aðskilið svartvatn og grávatn.
Vel var mætt við vígsluna enda hátíðisdagur í sögu sveitarfélagsins því nú er aðstaða leikskólans til fyrirmyndar.
Heimild: 640.is