Á síðastliðnum tveimur vikum hefur í þrígang verið brotist inn í vinnuvélar á Norðurlandi og úr þeim tekin dýr stýritæki og annar búnaður.
Fyrsta innbrotið var framið í Skagafirði fyrir um tveimur vikum, annað innbrot var svo framið á Akureyri í vikunni og síðasta innbrotið fór fram í fyrrinótt í Aðaldal.
Heimildir mbl.is herma að svartur eða dökkur jeppi á erlendu númeri tengist málunum en Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir að of snemmt sé að staðfesta nokkuð slíkt.
Einnig sé óvíst hvort um sé að ræða sama innbrotsþjófinn í öllum tilvikum.
Hermann segir að málið sé í skoðun. „Við erum að reyna að átta okkur betur á hlutunum.“
Heimild: Mbl.is