Landsnet óskar eftir tilboði í lagningu jarðstrengja. Verkið felst í því að grafa fyrir og leggja 66 kV jarðstreng, Neskaupstaðarlínu 2, og fjarskiptarör, alls um 10 km leið.
Þar af um 0,5 km frá tengivirki á Eskifirði að gangamunna Norðfjarðarganga að sunnanverðu og um 9,5 km leið frá gangamunna Norðfjarðarganga að norðanverðu að tengivirki á Neskaupstað.
Grafa fyrir og leggja 132 kV jarðstreng og fjarskiptarör frá tengivirkinu á Eyvindará, Eskifjarðarlínu 1, um 1,7 km leið að nýju endamastri á loftlínu ES1.
Opnun tilboða verður hjá Landsneti að Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar er að fnna í útboðsgögnum sem verða birt á útboðsvef Landsnets í síðasta lagi þriðjudaginn 11. febrúar 2020.
Heimild: Landsnet.is