Slökkvilið Norðurþings tók sl. föstudag formlega í notkun nýa og sérhannaða slökkvistöð sem staðsett við Húsavíkurhöfn.
Hafnir Norðurþings verða einnig með aðstöðu í húsinu sem er rúmlega 1.000 fermetrar að stærð.
Mannvirkið og búnaður þess voru kynnt gestum en meðal þeirra voru Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Hermann Jónasson forstjóri Húsnæðis- og Mannvirkjastofnunar en brunavarnir fluttust til stofnunarinnar um áramótin.
Í fréttatilkynningu kemur fram að mikil uppbygging hafi verið í Norðurþingi síðustu misseri og því aukin krafa um gott slökkvilið, vel þjálfað og vel útbúið.
„Nýja slökkvistöðin inniheldur fjölbreytta aðstöðu, s.s. skrifstofur, kaffistofu, fræðslusal, stjórnstöð, búningsherbergi karla og kvenna, saunaklefa og sérstaka eldgallageymslu. Þá er þar einnig rúmlega 700 fermetra bílasalur úr stálgrind, klæddur með yleiningum sem inniheldur m.a. þurrkherbergi, þvottaherbergi, líkamsrækt, aðstöðu fyrir reykkafara, efnageymslu, tæknirými og verkstæði.
Stálvirki hússins er allt eldvarið og í því eru sjálfvirkar reyklúgur og úðarakerfi. Útsog er fyrir bíla slökkviliðisins í gólfniðurföllum og húsið er útbúið með eigin varaaflsstöð,“ segir í tilkynningu.
Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra, Grímur Kárason slökkviliðsstjóri Norðurþings og Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri Norðurþings. Kristján Þór flutti ræðu við þetta tilefni sem lesa má hér en þar fór hann m.a yfir sögu slökkviliðs á Húsavík.
Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra tók til máls og sagði m.a: „Brunamál og brunaöryggi skipta okkur sem samfélag miklu máli. Markmið mitt er að taka þennan málaflokk föstum tökum og efla til framtíðar. Bætt aðstaða slökkviliða, bæði til viðbragða, þjálfunar og fræðslu er fyrsta skrefið í þá átt að stórbæta brunavarnir landsmanna.
Fátt getur valdið jafn miklu tjóni og alvarlegir brunar og við megum ekki láta staðar numið fyrr en það heyrir til undantekninga að brunaskaði verði í bæjum og sveitum landsins. Samfélagið allt þarf að búa við brunavarnir og forvarnir eins og best gerist. Þetta er á meðal þess sem ég vænti af nýrri Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, að hún stórefli brunavarnir mannvirkja, fræðslu og upplýsingagjöf til bæði heimila og fyrirtækja.
Því er ánægjulegt að taka þátt í því ásamt forystufólki þessarar nýju stofnunar, HMS, að opna þessi glæsilegu nýju heimkynni slökkviliðisins í Norðurþingi á Húsavík,“ segir í fréttatilkynningu.
Grímur Kárason slökkviliðsstjóri Norðurþings og Davíð S. Snorrason forstöðumaður brunamála hjá HMS undirrituðu nýja brunavarnaáætlun fyrir starfssvæði slökkviliðs Norðurþings.
Markmið brunavarnaáætlunarinnar er að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þá brunaáhættu sem er í sveitarfélaginu.
„Brunavarnaáætlanir eiga að stuðla að því að vernda líf og heilsu fólks, umhverfi og eignir með fullnægjandi eldvarnaeftirliti og viðbúnaði við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi.
Brunavarnaáætlanir gefa íbúum og stjórn sveitarfélagsins gott yfirlit yfir starfsemi og ástand slökkviliða og geta því orðið grunnur að gæðastjórnun og áætlun um endurbætur til dæmis hvað varðar búnað, menntun og samstarf við aðra aðila,“ segir í tilkynningu.
Heimild: 641.is