Annað af tveimur sjúkrahúsum sem Kínverjar réðust í byggingu á í borginni Wuhan, þar sem kórónaveiran á upptök sín, er tilbúið til notkunar.
Aðeins tók átta daga að byggja Huoshenshan-sjúkrahúsið, en þar eru 1.000 rúm tilbúin fyrir sjúklinga þegar það verður opnað á morgun.
Um 1.400 heilbrigðisstarfsmenn úr hernum, með reynslu af smitsjúkdómum, hafa verið fluttir á svæðið og munu starfa á sjúkrahúsinu.
Yfir 14 þúsund manns hafa smitast af veirunni og yfir 300 látist, langflestir í Kína. Veiran hefur greinst í 24 löndum, þar á meðal Svíþjóð og Bretlandi, en aðeins eitt dauðsfall hefur átt sér stað utan Kína.
44 ára kínverskur karlmaður lést á Filippseyjum í dag eftir að hafa greinst með veiruna.
Nokkur ríki hafa ákveðið að loka landamærum sínum fyrir útlendingum sem nýlega hafa dvalið í Kína, og einnig ráðlagt þegnum sínum að forðast að ferðast þangað.
Þá stefna G7-ríkin á að funda í byrjun vikunnar til að samræma aðgerðir sínar við að reyna að hefta útbreiðslu veirunnar.
Heimild: Mbl.is