Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir á Norðursvæði 2020-2021, klæðing
Helstu magntölur á ári eru:
Yfirlögn með einföldu lagi klæðingar: 450.000 m2
Yfirlögn með kílingu: 44.000 m2
Flutningur steinefna: 6.500 m3
Flutningur bindiefna: 840 m3
Verki skal að fullu lokið 1. september ár hvert.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 17. janúar 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. febrúar 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.