Nú á næstu vikum verður farið að laga gangstéttar og lagnir á Boðaslóðinni í Vestmannaeyjum.
Um er að ræða gangstéttir, kanta, vatnslagnir, síma og ljósleiðaralagnir og því má reikna með að verkið taki svolítinn tíma.
Byrjað verður að skafa ofan af gangstéttum í næstu viku ef veður leyfir.
Óhjákvæmilega mun verða eitthvað rask við þessar framkvæmdir og biðjumst við velvirðingar á því, segir í tilkynningu Vestmannaeyjabær, Míla og HS veitur.
Heimild: Eyjar.net