Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir á Suðursvæði, Höfuðborgarsvæðið 2020-2021, malbik
Helstu magntölur eru:
Útlögn: 55.330 m2
Hjólfarafylling/afrétting: 5.500 m2
Fræsing: 55.920 m2
Merkingar (flákar): 1.200 m2
Merkingar (merkingarlengd): 40.000 m
Verki skal að fullu lokið 1. ágúst ár hvort.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 20. desember 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. janúar 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.