Home Fréttir Í fréttum Viðgerð á sjóvarnargarðinum við Norðurströnd á Seltjarnarnesi

Viðgerð á sjóvarnargarðinum við Norðurströnd á Seltjarnarnesi

235
0
Mynd: Seltjarnarnesbær.is

Nú standa yfir viðgerðir á sjóvarnargarðinum við Norðurströnd rétt hjá Hákarlahjallinum.

<>

Að sögn Gísla Hermannssonar sviðsstjóra Umhverfissviðs hefur sjóvarnargarðurinn á þessum stað látið á sjá og kvarnast hefur verulega upp úr honum á nokkrum stöðum.

Vegagerðin sér um eftirlit með þessu viðhaldsverkefni sem mun standa yfir næstu vikur.

JG vélar, Reykjavík sjá um framkvæmdina, en þeir áttu lægsta tilboð í verkið.

Á meðfylgjandi mynd má sjá verktakann að laga skörðin sem myndast hafa.

Heimild: Seltjarnarnesbær.is