Alþjóðlega hótelkeðjan Hyatt og Reitir fasteignafélag hafa undirritað sérleyfissamning um rekstur Hyatt Centric-hótels á Laugavegi 176.
Fasteignin, sem um áratuga skeið hýsti starfsemi Ríkissjónvarpsins, verður endurbyggð og stækkuð þannig að hún rúmi 169 herbergi, fundarsali, veitingastað, heilsurækt og almenningsrými.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reitum. Þar segir enn fremur að fasteignafélagið stefni að því að halda eigninni í eignasafni sínu til lengri tíma en selja rekstur hótelsins til traustra rekstraraðila.
Gert er ráð fyrir því að hótelið verði opnað 2022.
Um er að ræða fyrsta hótelið á Norðurlöndunum sem er opnað undir vörumerki Hyatt-keðjunnar og sjöunda Hyatt Centric-hótelið í Evrópu en vörumerkið flokkast sem lífsstílshótel.
„Síðastliðið ár höfum við lagt mikla vinnu í að kynna okkur norræna markaðinn og kynnast þróunaraðilanum og fasteignaeigandanum á Íslandi.
Innkoma okkar á markaðinn með Hyatt Centric Reykjavík er því mikilvægur áfangi fyrir okkur. Opnunin ber ekki eingöngu vitni um hinn mikla vöxt Hyatt þegar kemur að gæðahótelum í Evrópu heldur styður hún einnig áform okkar um að hasla okkur völl á mörkuðum þar sem svæðisbundnir aðilar ráða ríkjum,“ er haft eftir Peter Norman, framkvæmdastjóra þróunar hjá Hyatt.
„Það er mjög ánægjulegt að geta tilkynnt opnun fyrsta Hyatt-hótelsins á Íslandi. Vörumerkið er rótgróið og þekkt um allan heim og við sjáum mikil tækifæri fólgin í því að opna hótel í samstarfi við slíkan aðila,“ er meðal annars haft eftir Guðjóni Auðunssyni, forstjóra Reita.
Heimild: Mbl.is