Home Fréttir Útboð 06.07.2015 Vesturbyggð óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við gatnagerð í Aðalstræti á...

06.07.2015 Vesturbyggð óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við gatnagerð í Aðalstræti á Patreksfirði

185
0
Patreksfjörður

Vesturbyggð óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við gatnagerð í Aðalstræti á Patreksfirði. Verkið felst í að endurgera Aðalstræti á kaflanum frá Eyrargötu að Aðalstræti 31, uppúrtekt, lagnir, fyllingar og jöfnunarlag.

Útboðsgögn má nálgast hjá tæknideild Vesturbyggðar að Aðalstræti 75, frá og með miðvikudeginum 24.júní. Einnig er hægt að óska eftir útboðsgögnum á rafrænu formi hjá elfar@vesturbyggd.is.

Helstu magntölur eru:

Rif slitlags: 3.600 m2

Gröftur í götustæði: 3.300 m3

Fyllingar í götu : 3.300m3

Gröftur fráveituskurða: 1.300 m3

Fyllingar í lagnaskurði: 700 m3

Jöfnunarlag undir malbik 50mm: 3.600 m2

Holræsalagnir: 1.500m

Vatnslagnir: 700m

Skila skal tilboðum á sama stað eigi síðar en mánudaginn 6.júlí kl. 14.00 og verða þá opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda, sem viðstaddir verða.

Tæknideild Vesturbyggðar.

Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði