Framkvæmdir við stækkun Norðurgarðs í Grundarfjarðarhöfn er komnar á fullan skrið.
Nú er mikil umferð vörubíla og vinnuvéla um hafnarsvæðið og fólk því beðið um að draga úr bryggjurúntum á meðan.
Þessa dagana er verið að keyra á staðinn stórgrýti úr Grafarnámu.
Það er Borgarverk sem er verktaki við framkvæmdirnar.
Heimild: Skessuhorn.is