Vegagerðin býður hér með út eftirlit með smíði nýrra brúa á Steinavötn og Fellsá ásamt rifi á steyptri brú yfir Steinavötn, vegtengingu við nýjar brýr, byggingu bráðabirgðahjáleiðar og tengingu bráðabirgðabrúar við Fellsá og rifi á núverandi
brú yfir Fellsá ásamt frágangi vegsvæðis.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Forvalsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 25. nóvember 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. desember2019.
Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt umnöfn bjóðenda í útboðinu.
Þriðjudaginn 17. desember 2019 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.