Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins óskar eftir tilboðum í byggingu
Nýs stigahúss við Sjúkrahúsið á Húsavík, Auðbrekku 4, Húsavík. Stigahúsið er fjögurra hæða, alls um 120 m2.
Um er ræða fullbúið hús að innan og utan, þ.m.t. jarðvinna, uppsteypa og allur fullnaðarfrágangur.
Helstu magntölur:
Múrbrot og förgun – um 80 m²
Gröftur og fylling – um 440 m³
Veggjamót – um 360 m²
Plötumót og stigar – um 100 m²
Múrfrágangur, um 280 m²
Málun veggja, um 450 m²
Tilboðum skal skila inn á TendSign fyrir 10. des. 2019. Verkinu skal vera að fullu lokið 31. júlí 2020.
Útboðsgögn eru í rafræna útboðskerfinu TendSign og skal tilboðum skilað þar inn.
Nánari upplýsingar og kröfur til verksins í útboðskerfi Ríkiskaupa www.tendsign.is
Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið má nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa.