Vesturbyggð óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu í Taglinu.
Útboðið nefnist:
Bíldudalur: Taglið. efnisvinnsla 2019
Helstu magntölur:
Efnisvinnsla, grjót og kjarni um 22.000 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. apríl 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 28 október 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudeginum 12. nóvember 2019.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.