Í dag voru tilboð í smíði og uppsetningu útsýnispalls á Bolafjalli opnuð í Ráðhúsi Bolungarvíkur.
Fjögur tilboð bárust:
276.046.782 kr. – Ístak hf.
197.725.738 kr. – Köfunarþjónustan ehf.
158.505.000 kr. – Eykt ehf.
169.315.966 kr. – Þotan ehf.
Kostnaðaráætlun er 193.000.000 kr.
Meðal helstu verkþátta eru:
Borun og festing bergbolta.
Smíði og uppsetning stálvirkis.
Frágangur yfirborðs.
Verkinu skal að fullu lokið 15. október 2021.
Engar athugasemdir hafa komið fram við framkvæmd útboðsins.
Heimild: BB.is