Home Fréttir Í fréttum 05.11.2019 Stígalýsing, Arnarbakki, Strandvegur, Víðidalur og Víkurvegur 2019

05.11.2019 Stígalýsing, Arnarbakki, Strandvegur, Víðidalur og Víkurvegur 2019

178
0
Mynd: Reykjavik.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Stígalýsing, Arnarbakki, Strandvegur, Víðidalur og Víkurvegur 2019, útboð nr. 14671
Um er að ræða uppsetningu stígalýsingar við göngustíga á Arnarbakka, við Strandveg, í Víðidal og við Víkurveg. Í verkinu felst lagning strengja og uppsetning ljósastaura og tengiskápa með tilheyrandi jarðvinnu.

Helstu magntölur eru:
Skurðgröftur 3.630 m
Lagning jarðstrengja 5.065 m
Uppsetning ljósastaura 115 stk.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00, þriðjudaginn 22. október 2019. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupaskrifstofu. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 5. nóvember 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is