F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Aðalstræti 10-16 – Breytingar og opnun á tengigangi, útboð nr. 14668.
Verkið felst í:
Í að opna,tengigang sem tengir Landnámssýninguna í kjallara Aðalstræti 16, en þar er að finna fornleifar frá elstu byggð í Reykjavík, og elsta húss Reykjavíkur í Aðalstræti 10, saman.
Við opnun gangs þarf að ganga frá gólfum, veggjum, loftum, ásamt því að setja upp eldvarnar- og rennihurðar í ganginum.
Í húsi nr. 10 verður einnig sagað í gólf fyrir lyftu milli hæða ásamt breytingum skipulagi í kjallara hússins, gerð salerna, sett upp loftræsikerfi og nýtt eldhús verður sett upp á 2. hæð í framhúsinu. Breytingar verða á raflögnum, öryggiskerfum og vatns- og hitalögnum.
Verklok: 14. febrúar 2020.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00 þann 17. október 2019.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupaskrifstofu. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 28. október 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is