18.6.2015
Hafnasjóður Fjarðabyggðar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
1) Upptekt og endurröðun grjóti á garðsenda, um 770 m³.
2) Staurarekstur, 56 staurar.
3) Uppsetning á gjörðum, stögum og fender.
4) Grjótfylla tunnu, um 900 m³.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. október 2015.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttöku) og á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, frá og með mánudeginum 22. júni 2015. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 8. júli 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.