Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir kostnað Reykjavíkurborgar við byggingu Aldin BioDome í Elliðaárdalnum geta hækkað um hundruð milljóna vegna fráveitumála.
Í bréfi Skipulagsstofnunar til umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar er gerð athugasemd við að „fráveitulögn Reykjavíkurborgar liggur töluvert hærra í landi en „gólf“ gróðurhvelfinganna“.
Segir í svari frá Veitum að settir verði skilmálar um niðurgrafin þil eða styrkingu í kringum núverandi fráveitulögn.
„Þetta getur aukið kostnað borgarinnar um mörg hundruð milljónir,“ segir Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. „Það er ekkert smá verk að koma í veg fyrir að frárennslið renni beint út í Elliðaár.“
Heimild: Frettabladid.is