Hafnarsjóður Grundarfjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í lengingu Norðurgarð.
Helstu verkþættir eru gerð á 90 m löngum bermugarð, rekstur 122 stálþilsplatna, steypa akkerisplötur, uppsetning staga og festinga, jarðvinna aftan við stálþil, steypa kantbita með pollum, uppsetningu á stigum og fríholtum.
Bygging bermugarðs skal lokið eigi síðar en 15. desember 2019. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1.júní 2020.
Útboðsgögn verða afhent þann 13.09.2019 kl. 09:00
Opnun tilboða verður þann 27.09.2019 kl. 14:15