F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Fjölnota íþróttahús í Suður Mjódd. Umsjón og eftirlit með verkframkvæmdum, útboð nr. 14577
Um er að ræða eftirlit á verklegum framkvæmum ÍR fjölnotahús að Skógarseli 12.
Verklok framkvæmda eru áætluð 9. mars 2020.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00, þriðjudaginn 3. september 2019 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupaskrifstofu. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:10, þann 17. september 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is