Verslunar- og þjónusturekendur við Hverfisgötu eru mjög óánægðir með hversu langan tíma hefur tekið að endurgera götuna. Í síðustu viku var eigendum fyrirtækja við götuna tilkynnt um seinkun, meðal annars vegna þess hversu erfitt reyndist að fá menn í vinnu um verslunarmannahelgina.
Ásmundur Helgason, eigandi kaffihússins Gráa kattarins, segir að upplýsingaflæði til verslana og þjónustufyrirtækja við Hverfisgötu hafi verið lélegt.
Í kjölfar frétta af óánægju eigenda fyrirtækjanna sendi Reykjavíkurborg frá sér tilkynningu til fjölmiðla um að Hverfisgatan yrði opnuð í áföngum á næstu vikum. Gönguleiðir hafa verið opnar á framkvæmdatímanum á pöllum, eins og aðkomuleið að bílastæðahúsinu Traðarkoti.
Þessa dagana er unnið við lagnir og endurnýjun bæði fráveitu- og hitaveitulagna. Stefnt er að því að fylla upp í skurði sem grafnir hafa verið í götuna fyrir Menningarnótt í Reykjavík, sem er um aðra helgi.
Þá er gert ráð fyrir að gatan verði opnuð gangandi vegfarendum. Um mánaðamót á svo að malbika. Hellur verða svo lagðar fyrir framan Þjóðleikhúsið og á gagnamótum Hverfisgötu og Ingólfsstrætis.
Heimild: Ruv.is