Home Fréttir Í fréttum Samantekt af framvindu við gerð Dýrafjarðarganga.

Samantekt af framvindu við gerð Dýrafjarðarganga.

202
0
Mynd: BB.is

Hér er samantekt af því helsta sem gerðist í vikum 29-32 við vinnu Dýrafjarðarganga.

<>

Í göngunum var klárað að leggja frárennslis- dren- og ídráttarlagnir ásamt brunnum í hægri vegöxl frá gegnumbroti og að munna í Arnarfirði.

Einnig var haldið áfram með niðursetningu á drenlögn í vinstri vegöxl. Að auki var unnið við að koma fyrir tengibrunnum fyrir rafmagn.

Vinnu við sprautusteypun í göngunum kláraðist 27. júlí og er allri vinnu við bergstyrkingar endanlega lokið í göngunum.

Haldið var áfram vinnu við vatnsvarnir í göngunum. Búið er að koma fyrir um 17.100 boltafestingum en í heildina er gert fyrir að þær verði um 35.000.

Búið er að setja upp um 5.200 m2 af einangrunarklæðingu en í heildina er gert ráð fyrir að hún verði um 50.0000 m2.

Klárað var steypa eitt tæknirými og búið að steypa gólf og veggi í öðru tæknirými. Búið er að klára jarðvegsvinnu fyrir tvö tæknirými til viðbótar en í heildina eru 4 tæknirými í göngunum.

Búið er að steypa 14 steypufærur af yfirbyggingu vegskálans í Dýrafirði og eingöngu síðasta steypufæran eftir. Í Arnarfirði er búið að steypa þrifalag fyrir fyrstu tvær steypufærurnar fyrir vegskálann og jarðvegsvinna kominn vel á veg.

Í Dýrafirði var unnið við tengivegi og vegfláa. Vetrarvegur sem var handan við brúna yfir Dýrafjörð við núverandi veg var fjarlægður og efnið flutt yfir í vegfláa meðfram nýja veginu. Efnisvinnsla á efni úr göngunum var í gangi beggja vegna ganganna ásamt vinnslu á efni úr námunni í Nautahjalla.

Brúargólfið í brúnni yfir Mjólká var steypt.
Á meðfylgjandi myndum má sjá vegavinnu í Dýrafirði, uppsetta vatnsklæðingu, innsetningu á bergfestingum fyrir vatnsvörn, horft út eftir vegskálanum í Dýrafirði, forskeringu Arnarfjarðarmeginn og tæknirými í göngunum.

 

Mynd: BB.is
Mynd: BB.is

Fyrir hönd framkvæmdaeftirlits Dýrafjarðarganga
Baldvin Jónbjarnarson

Heimild: BB.is