F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Háaleitisbraut. Hjólastígur. Brekkugerði – Miklabraut, útboð nr. 13546.
Verkið felst í gerð hjólastígs austan Háaleitisbrautar milli Brekkugerðis að sunnan og Miklubrautar að norðan með flutningi ljósastaura frá götu að lóðamörkum fjær stíg, endurnýjun kantsteins á Háaleitisbraut, flutningi strætóbiðstöðvar að Háaleitisbraut og nýjum frágangi í kringum hana og fullnaðarfrágangi þverana við Smáagerði og Brekkugerði.Verkið felst einnig í endurnýjun á hluta raflagna milli núverandi göngustígs og lóðarmarka samsíða honum. Auk þessa skal færa fimm umferðaljós, hraðavaraskilti og önnur skilti sem nú eru í komandi hjólastígastæði. Færa þarf fjögur niðurföll í samræmi við breytingar á kantlínu.
Helstu magntölur eru:
· Upprif á föstu yfirborði 600 m²
· Uppgröftur 800 m³
· Malarfylling 800 m³
· Malbikun 1000 m²
· Staðsteyptur kantsteinn 500 m
· Stéttar og steinlagnir 650 m²
· Þökulagnir 200 m²
· Uppsetning ljósastólpa 12 stk
· Raflagnir. Jarðvinna 950 m
· Færsla á niðurföllum 4 stk
Lokaskiladagur verksins er 1. október 2015.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á 3.000 kr. frá fimmtudeginum 18. júní 2015, í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1.hæð, 105 Reykjavík.
Opnun tilboða: Fimmtudaginn 2. júlí 2015 kl. 11:00, í Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Tilboðum skal skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar.