Um 520 herbergi bætast við hótelmarkaðinn í Reykjavík frá júní til áramóta. Þá bætist við að minnsta kosti 51 hótelíbúð á tímabilinu. Þetta kemur fram í samantekt í Morgunblaðinu í dag.
Staðan var könnuð hjá fimm nýjum hótelum en í tveimur tilvikum er verið að fjölga herbergjum á núverandi hótelum.
Þá er áformað að opna 150 herbergja Marriott-hótel við Leifsstöð í haust. Alls eru þetta 670 herbergi. Verkefnin voru hafin þegar tvísýnt varð um WOW air.
Eina breytingin er að ekki verður af samnýtingu tveggja húsa í Skipholti undir hótel.
Að öðru leyti virðast áformin vera óbreytt í meginatriðum.
Miðað við að hvert hótelherbergi í miðborginni kosti 25 milljónir í byggingu hleypur fjárfestingin á 12-13 milljörðum.
Við það bætist kostnaður við yfir 50 nýjar hótelíbúðir.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar lækkaði nýtingarhlutfall hótelherbergja á landinu í maí úr 58% í 56% milli ára en framboðið jókst um 13%, úr 9.200 herbergjum í 10.500 herbergi.
Sama staða í Kaupmannahöfn
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segist vænta þess að eftirspurnin aukist í kjölfar aukins framboðs á hótelherbergjum. Þar til jafnvægi næst geti aukin samkeppni leitt af sér hagstæðara verð á gistingu.
Til dæmis sé svipuð staða nú fyrirséð í ferðaþjónustu í Kaupmannahöfn. Flugframboð muni hafa mikil áhrif á hversu langt þetta tímabil verður á Íslandi.
Heimild: Mbl.is