Vegagerðin óskar eftir tilboðum í smíði nýrrar brúar á Brunná í Skaftárhreppi.
Brúin er 24 m löng eftirspennt steypt bitabrú í einu hafi með steyptum endastöplum.
Helstu magntölur vegna brúa eru:
Vegrið 78 m
Gröftur 900 m3
Mótafletir 1.038 m2
Steypustyrktarstál 36,2 tonn
Spennt járnalögn 4,1 tonn
Steypa 372 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 30. nóvember 2019
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 8. júlí 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. júlí 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.