Fráveitukerfi Tálknafjarðarhrepps þarfnast viðamikilla endurnýjunar. Bryndís Sigurðsdóttir, sveitarstjóri segir að heildarkostnaðurinn slagi upp í 200 milljónir króna.
Eðlilega er það stór biti fyrir fámennt sveitarfélag.
Á þessu ári verður unnin fyrsti áfangi framkvæmdanna, sem er að leggja nýja útrás frá fráveitunni, frá lóðarmörkum Strandgötu 25 og út í sjó.
Lögð verður 1200 mm lögn við fráveitulögnina sem liggur undir Strandgötu og gegnum sundið milli Strandgötu 25 og 27.
Jafnframt verður lögð fráveitulögn frá íbúðabyggð og tengd inn á nýju lögnina.
Kostnaður við áfangann er áætlaður tæpar 15 milljónir króna að sögn Bryndísar.
Gerður hefur verið samningur við fyrirtækið Allt í járnum ehf um fyrsta áfangann.
Næstu áfangar eru við skóla og íþróttamiðstöð, þar þarf bæði að setja niður rotþrær og útrás. Áfangar 4 og 5 felast í lögnum frá Lækjargötu og neðan Strandgötu og áfangi 6 er ný útrás. Lokaáfanginn er svo hreinsistöð.
Heimild: BB.is