Hafnasjóður Sandgerðishafnar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
· Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu þekju.
· Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 1.600 m².
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2019.
Útboðsgögn afhent hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á skrifstofu Sandgerðisbæjar frá og með þriðjudeginum 28. maí 2019.
Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 12.júní 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.