Ríkiskaup f.h. Isavia ohf óska eftir tilboðum í verkið:
Keflavíkurflugvöllur – Fráveitumannvirki
Dælu- og hreinsistöð – Vélbúnaður
Verkið felst í að útvega og setja upp dælur, rör og hreinsibúnað með sniglum og þjöppum ásamt tilheyrandi stjórnkerfi og öðru tilheyrandi í dælu- og hreinsistöð við Djúpavík í Sandgerði.
Helstu verkþættir og magntölur:
Hreinsibúnaður 2 stk
Dælur 4 stk
Snigilþjöppur 2 stk
Sniglar 2 stk
Verki skal að fullu lokið 30. nóvember 2015.
Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is miðvikudaginn 3. júní 2015. Tilboð verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska þriðjudaginn 16. júní 2015 kl. 11.00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík.