F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Foldaskóli, endurnýjun á þaki á turni – útboð nr. 14537.
Verkið felst í:
Foldaskóli stendur við Logafold 1, 112 Reykjavík. Húsnæðið sem lagfæra á er byggt í kringum árið 1986 skv. Þjóðskrá Íslands.
Til stendur að fara í endurnýjun á þaki vesturbyggingar (hús 2).
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
Verkþáttur Ein. Magn
Endurnýjun þaks m2 950
Endurnýjun borðaklæðningar m2 95
Tvöföld lektugrind m2 950
Þakrenna m 120
Endurnýjun tækjaopa stk (m2) 1 (3)
Endurnýjun loftræsiútkasta stk (m2) 2 (10)
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 26. apríl 2019.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á “Nýskráning ” – „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.
Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30 þann 10. maí 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is