Stefnt er að því að ný viðbygging við stjórnarráðshúsið verði tilbúin eftir fjögur ár. Húsið mun leysa af hólmi skrifstofur forsætisráðuneytisins sem nú eru á sex stöðum í miðborginni.
Um þrjátíu tillögur bárust í samkeppni í tilefni hundrað ára afmælis fullveldis Íslendinga í viðbyggingu við stjórnarráðshúsið í Lækjargötu sem hýsir forsætisráðuneytið. Nú liggur fyrir að byggt verður samkvæmt vinningstillögu frá Kurt og Pí arkitektum.
Guðrún Ingvarsdóttir forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins segir undirbúning deiliskipulags og hönnunar að hefjast og muni taka á annaðár.
„Á sama tíma verður fariðí fornleifauppgröft á svæðinu þannig að allt sé til reiðu þegar tímabært verður að fara íútboð og framkvæmdir. Að óbreyttu erum við að horfa á að framkvæmdir geti hafist og skóflustunga árið 2021 og það verði hægt að flytja inn árið 2023,“ segir Guðrún.
Forsætisráðuneytið hafi sprengt utan af sér gömlu stjórnarráðsbygginguna fyrir áratugum. Nú fari starfsemi ráðuneytisins fram í leiguhúsnæði á fimm öðrum stöðum í miðborginni sem sé óhagkvæmt af mörgum ástæðum.
„Hér verður þá allt á einni torfu. Nútímalegt vinnuumhverfi fyrir starfsmenn ráðuneytisins, fundaaðstaða fyrir ríkisstjórn og svo framvegis. Og náttúrlega frábær aðstaða fyrir fjölmiðla,“ segir Guðrún þar sem hún stendur á lóð væntanlegrar nýbyggingar.
Nýbyggingin verður á tveimur hæðum með skrifstofum fyrir tæplega 60 starfsmenn og móttöku- og fundarherbergjum á jarðhæð. Hægt verður að aka með gesti inn í kjallara húsins þar sem einnig verða nokkur bílastæði. Dómnefnd telur bygginguna falla vel að stjórnarráðshúsinu sem er eitt af nokkrum elstu steinhúsum í landinu.
„Hún er mjög lágstemmd. Hún rís ekki hátt upp og ef skoðaðar eru þessar hátt í þrjátíu tillögur sem komu má sjá að það eru ýmsar leiðir farnar. En við teljum að þessi sýni þessum reit virðingu og muni heppnast vel,“ segir Guðrún Ingvarsdóttir.
Heimild: Visir.is