Talsverðar framkvæmdir eru í gangi eða í farvatninu á Blönduósi og eru þær tíundaðar í skýrslu sveitarstjóra sem lögð var fram á 66. fundi sveitarstjórnar Blönduósbæjar 9. apríl síðastliðinn.
Í henni kemur fram að búið sé að úthluta lóð fyrir 20 íbúa fjölbýlishús við Hnjúkabyggð 29 og að gert sé ráð fyrir að framkvæmdir hefjast bráðlega.
Framkvæmdatíminn á að vera stuttur eða aðeins 12-14 mánuðir. Stærsta framkvæmd sveitarfélagsins á árinu er verknámshús – viðbygging við Blönduskóla.
Undirbúningur framkvæmdarinnar hefur gengið vel og hönnun að mestu lokið. Verkefnið er tilbúið til útboðs og fyrir vinnu ársins sem er niðurrif og uppsteypa. Stefnt er að því að viðbyggingin verði steypt upp og komist undir þak á þessu ári.
Önnur stærsta framkvæmdin á árinu er lagning vatnsveitu og fráveitu frá bænum að gagnaverssvæði m.a., til þess að mæta þeirri uppbyggingu sem þegar hefur átt sér stað og til að styrkja svæðið enn frekar til framtíðaruppbyggingar.
Framkvæmdir standa yfir í Brautarhvammi þar sem búið er að reisa nýtt og glæsilegt þjónustuhús sem einnig verður með nokkrum gistieiningum og morgunverðarsal.
Þá er búið að gefa vilyrði fyrir endurúthlutun á tveimur lóðum við Smárabraut, sem skilað hefur verið inn, til félags sem hyggst reisa þar tilbúin raðhús.
Eftir að Blönduósbær keypti fyrstu hæðina á Þverbraut 1 hefur verið unnið að því að breyta notkun hússins. Búið að rýma húsið og hanna smíðastofu til bráðabirgða í fyrrum prentsal og verið er að vinna að viðeigandi breytingum á húsnæði þeim megin.
Salurinn í hinum endanum verður lítið breytt en hefur verið leigður út til viðburða en verið að skoða aukna nýtingu, m.a. með Félagi eldri borgara og síðar líka fyrir Skjólið.
Í skýrslunni kemur fram að mikil vinni hafi verið lögð í að undirbúa skipulag á nýju íbúðahverfi við Fjallabraut, Lækjarbraut og Holtabraut. Skipulagið hefur verið kynnt á íbúafundi en verið sé að aðlaga það að aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Á sama íbúafundi var vinna við deiliskipulag í gamla bænum á Blönduósi kynnt sem unnin var af Landmótun. Byggingafulltrúi hefur síðan fundað með eigendum einstakra fasteigna um hugmyndir þeirra og sveitarfélagsins er varðar skipulagið.
Í skýrslunni kemur einnig fram að unnið hafi verið að því að Blönduósbær eignaðist Gamla K.H. húsið, og varð það að veruleika með afsali 14. mars síðastliðinn.
Umsamið kaupverð hefur þegar verið greitt, með yfirtöku á áhvílandi veðskuld og hefur nú verið gengið frá öllum formsatriðum. Blönduósbær fékk á dögunum 350 þúsund króna styrk úr Húsfriðunarsjóði vegna hússins.
Heimild: Huni.is