Vegagerðin hefur hafnað tilboði lægstbjóðanda í breikkun 3,2 kílómetra kafla Reykjanesbrautar í Hafnarfirði þar sem bjóðandinn stóðst ekki kröfur útboðsins.
Í staðinn verður rætt við þann sem átti næstlægsta boð, Ístak.
Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.
Verktakasamsteypa sem samanstóð af þremur fyrirtækjum, Ellert Skúlasyni, Borgarvirki og GT-verktökum, stóðst ekki skilyrði um að hafa áður unnið verkefni af ákveðinni stærðargráðu, að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar.
Heimild: Sudurnes.net